Erum við alveg að lognast útaf???? Reynum nú að halda síðunni
við og skrifa fréttir um okkur og fá fréttir af hinum.
Helga mín - takk fyrir skrifin þín. Vonandi
allt gott að frétta af þér og þínum.
Gerða - myndin af Sif og Þóru er æðisleg....
vonandi gengur þér allt í haginn, bæði í einkalífi og vinnu.
Jenný - reikna fastlega með að hlutirnir
séu farnir að ganga upp hjá þér og þú farin að hugsa um að eignast
annað barn í framtíðinni. Enginn verður óbarinn biskup......
Fjóla - hvernig væri nú að láta vita ef þú ert
á ferðinni í höfuðborginni ( síminn er 896-2148 ) svo við getum
sest inn á kaffihús og "slúðrað" svolítið.
Hrefna Björk - hvar í veröldinni ert þú ??!!???
hef ekki séð þig síðan um jólin árið guð má vita hvað. Vertu í
sambandi.
Sigga Lára - hvað er að frétta af þér og þínum
? Kannski býrðu enn í nágrenni við mig í Kópavoginum, kíki kannski
við eitthvert kvöldið í kaffi ?! Hver veit...............
Agnes krútt - ætluðum við ekki að
hittast.... Hringdu í mig sem allra,allra fyrst svo við getum farið
að skipuleggja árshátíðina eða hvað við eigum að kalla þetta. Sjá
símanúmer ofar á síðunni. Vonandi ertu búin að finna nýja íbúð -
fyrst Sigrún seldi ofan af ykkur.........
Sigrún - alltaf nóg að gera hjá þér... vonandi
gengur nýja vinnan vel hjá þér ( hvernig læt ég - auðvitað gerir
hún það ). Vonast til þess að þú verðir líka í sambandi vegna
árshátíðarinnar...
Dóra - fjármálasnillingur - láttu líka vita
næst eþgar þú kemur í bæinn. Þá getum við kannski gefið okkur smá
tíma milli stríða til að fá okkur svona eins og einn kaffibolla
saman. Gangi þér vel.
Bryndís - þú ert alltaf jafn óborganleg.
Þið hinar - hvað eruð þið að bardúsa þessa dagana ???
Ég sakna ykkar dúllurnar mínar, annars er allt gott að
frétta af mér. Alltaf jafn mikið að gera í vinnunni.. mæti snemma
og hætti seint. Nú er sumarið að koma og vonandi verður góður tími
til að spila golf og "chilla" svolítið...
Er alltaf að reyna að setja mér markmið og núna um síðustu
áramót þá voru áramótaheitin mín eftirfarandi ( ekkert endilega í
þessari röð ) :
- Vakna snemma
- elska það sem ég geri
- breyta reiði í lausnir
- segja sjálfri mér að ég sé best
- elska sjálfa mig og ástina
Hef frá ársbyrjun reynt að fara eftir þessu og gengið bara vonum
framar. Það er helst þetta með að breyta reiði í lausnir sem vefst
fyrir mér en þetta er allt að koma.
Og það er að bætast við fjölskylduna mína þar sem ég á von á
fjórða barnabarninu núna í haust. Já, sumir eru sko ríkari en
aðrir. Þannig er að hún Elín Anna mín á von á sér um miðjan
september. Bara gaman. Henni heilsast vel og eru þau skötuhjúin (
hún og Sóli ) ánægð með stöðuna. Sigfús og Tinna Marína eru
að festa sér íbúð í Hafnarfirði, Guðrún Selma ætlar að vinna á
Akranesi í sumar, Bylgja býr í Borgarnesi með eiginmanni og þremur
börnum og ég vinn og bý í Kópavogi. Er enn formaður í
Starfsmannafélagi Kópavogs og alltaf jafn ástfangin...
Látið heyra í ykkur hvort sem er hér á síðunni nú eða í síma.
Hlakka til að fylgjast með næstu færslum hér inni. Hafið það gott
og ekki hvað síst GLEÐILEGT SUMAR allar saman. Njótið lífins og
þess sem það býður upp á, það er nefnilega svo stutt að við verðum
eiginlega að passa að fresta engu til morguns sem við getum
gert í dag, því enginn veit hvar við verðum á morgun.
Eigið frábæran dag......
Kveðja
Jósý